Viltu fasteignir kynnir fallega, mikið endurnýjaða og bjarta 54,8fm tveggja herbergja útsýnis íbúð með mjög stórum og góðum svölum á vinsælum stað við Álfaskeið 74 Hafnarfirði, frábær staðsetning og stutt í alla þjónustu.
Íbúðin er skráð 54,8 fm fm en þar af er sér geymsla í kjallara 4,2 fm, auk sameignar.

Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.

Allar nánari upplýsingar veita:

Elísabet Kvaran löggiltur fasteignasali í síma 781-2100, si.utlivobfsctd-74d6b4@tebasile

Karólína Íris löggiltur fasteignasali í síma 772-6939, si.utlivobfsctd-38a03b@anilorak

Lýsing

Anddyri: Parket á gólfi og fataskápur
Stofa: Björt og falleg með parketi ágólfi. Útgengt á suður-svalir.
Eldhús: Opið inn í stofu. Falleg svört innrétting með ofni í vinnuhæð, eyju og góðu skápaplássi. Parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott með góðum fataskáp. Parket er á gólfi.
Baðherbergi: Er með hvítri innréttingu, baðkari , handklæðaofn og upphengdu salerni. Flísalagðir veggir og gólf.
Geymsla: Er í sameign, ásamt þvottahúsi og hjóla-vagnageymslu.

Endurbætur:

​​​​​​Árið 2021 var íbúðin öll tekin í gegn :

Baðherbergi og eldhús endurnýjað, kaldavatnslögn fyrir eldhús er tekið úr baðherbergi í eldhús og á sama tíma er krani settur út á svalir). Nýjir ofnar settir,

Skipt um allt gler í gluggum og nýr svalarhurðarfleki (svalarhurð) settur í og opnanlegum fögum breytt á gluggum.

Lagt nýtt rafmagn fyrir tæki og rafmagnstafla löguð. Endurnýjað allt í rafmagnstöflu.

Nýtt parket og allir skápar .

Fyrirvarar:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.