Viltu fasteignasala kynnir fallega og bjarta 3ja herbergja íbúð með sérinngangi á 2. hæð (1. hæð frá götu) í nýlegu fjölbýlishúsi við Álfhólsveg 111 í Kópavogi. Eignin er skráð alls 95,9m2, þar af er íbúð 88,8m2 og sérgeymsla í sameign 7,1m2. Húsið er byggt árið 2016 og eru fimm íbúðir í húsinu. Húsið er steypt og klætt að utan. Hiti er í stétt, tröppum og upp að bílastæðum. Glæsilegt útsýni frá 24,7 m2 svölum. Einnig er 15m2 sólpallur sem snýr í suður. Stutt er í skóla, leikskóla, framhaldsskóla og alla þjónustu.

Eignin skiptist í tvö svefnherbergi, forstofu, baðherbergi, þvottahús, eldhús, stofu og borðstofu.

Gott skipulag. Aukin lofthæð. Gólfhiti. Góð staðsetning. Glæsilegt útsýni. Varmaskiptir á neysluvatni.

Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.

Allar nánari upplýsingar veita:

Elísabet Kvaran löggiltur fasteignasali í síma 781-2100, si.utlivobfsctd-7750fd@tebasile

Karólína Íris löggiltur fasteignasali í síma 772-6939, si.utlivobfsctd-189ff3@anilorak

Komið er inn í rúmgóða forstofu með fataskápum. Flísar á gólfi. Úr forstofu er komið inn á gang. Á gangi eru tvö svefnherbergi.
Herbergi I er rúmgott með mjög góðu skápaplássi. Harðparket á gólfi.
Herbergi II er bjart með skápaplássi og harðparket á gólfi.
Þvottahús með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt með innréttingu, walk-in sturtu, vegghengdu salerni og handklæðaofni. Af gangi er komið inn í opið rými sem skiptist í eldhús, stofu og borðstofu. Gólfefni er harðparket.
Í eldhúsi er falleg, hvít HTH innrétting með eyju og stórum búrskáp. Í innréttingu er blástursofn, helluborð og háfur.
Samliggjandi stofa og borðstofa eru með stórum gluggum og úr rýminu er gengið út á mjög stórar svalir. Frábært útsýni.
Í sameign á jarðhæð er 7,1m2 sérgeymsla með hillum.

Tvö merkt bílastæði fylgja eigninni og við þau hefur verið sett upp rafhleðslustöð sem fylgir einnig.

Vorið 2025 var byggður 15m2 sólpallur á sérafnotareit eignarinnar við suðurhlið hússins.

Snyrtileg og falleg lóð.

Nánari upplýsingar í síma 5835000 eða si.utlivobfsctd-811071@davh

Fyrirvarar:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.