Viltu fasteignir kynna bjarta og vel skipulagða þriggja herbergja íbúð á jarðhæð á vinsælum stað við Álfhólsveg, 200 Kópavogi. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er birt stærð eignar 84,5fm. Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, tvö herbergi, baðherbergi og geymslu.

Þvottahús er sameiginlegt og er inn af íbúð með útgengi út í garð. Góð hellulögð verönd og sérafnota svæði út frá stofu.

Mjög vel staðsett eign miðsvæðis í Kópavogi og í góðu göngufæri við alla þjónustu í Hamraborg og Auðbrekkusvæðinu.

Stutt er í alla þjónustu s.s verslanir, skóla og leikskóla.

Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.

Allar nánari upplýsingar veita:

Elísabet Kvaran löggiltur fasteignasali í síma 781-2100, si.utlivobfsctd-67f7b2@tebasile

Karólína Íris löggiltur fasteignasali í síma 772-6939, si.utlivobfsctd-643618@anilorak

LÝSING:

Forstofa: Flísar á gólfi og fataskápur.
Eldhús: Eldri svört innrétting með tengi fyrir uppþvottavél. Flísar á gólfi.
Stofa/borðstofa: Opið rými með flotuðu gólfi. Hiti í gólfi.
Hjónaherbergi: Parket á gólfi.
Herbergi: Parket á gólfi.
Baðherbergi: Sturtuklefi, flísalagt í hólf og gólf og nett hvít innrétting.
Geymsla: Er innan íbúðar.
Þvottahús: Þvottahús er sameiginlegt og er inn af íbúð með aðgengi út í garð.

Fyrirvarar:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.