Viltu fasteignir kynna 3ja herbergja 80,1 fm íbúð á 2 hæð í lyftublokk við Asparfell 2 í Reykjavík.
Íbúðin er í góðu og snyrtilegu fjölbýlishúsi sem hefur fengið mjög gott viðhald í gengum árin. Aðgengi er mjög gott og næg bílastæði. Stutt í leik-og grunnskóla og alla helstu þjónustu. Í næsta nágrenni eru vinsæl útivistarsvæði.

Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.

Allar nánari upplýsingar veita:

Elísabet Kvaran löggiltur fasteignasali í síma 781-2100, si.utlivobfsctd-5e51f1@tebasile

Karólína Íris löggiltur fasteignasali í síma 772-6939, si.utlivobfsctd-158630@anilorak

LÝSING:
Anddyri: Flísar á gólfi, fataskápar.

Stofa: Björt með parket á gólfi,

Borðkrókur: Með útgengi út á svalir,

Eldhús: Eldri innrétting korkur á gólfi.

Baðherbergi: Með sturtuklefa og tengi fyrir þvottavél, gólf og veggir flísalagðir.

Hjónaherbergi: Rúmgott með skápum.

Herbergi: Með skáp, parkt á gólfi.

Á hæðinni er sameiginlegt þvottaherbergi fyrir fjórar íbúðir og sameignlegt geymslurými.
Í sameign í kjallara er sérgeymsla og sameiginleg hjólageymsla.

Fyrirvarar:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.