Viltu fasteignir kynna mikið endurnýjaða bjarta og vel skipulagða þriggja herbergja íbúð á 1. hæð með sérinngangi við Grettisgötu 44a 101 Reykjavík. Eignin skiptist í forstofu, eldhús, tvær samliggjandi stofur, svefnherbergi, baðherbergi og sérgeymslu í kjallara. Falleg íbúð á eftirsóttum stað í miðborginni – stutt í alla helstu verslun og þjónustu
Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Elísabet Kvaran löggiltur fasteignasali í síma 781-2100, si.utliv@tebasile
Lýsing eignar:
Forstofa: flísar á gólfi, geymslupláss undir innistiga.
Eldhús: Falleg innrétting, parket á gólfi, útgengi á stórar svalir.
Stofa: rúmgóð og björt, parket á gólfi, stórir gluggar sem ná fyrir hornið á húsinu.
Stofa/herbergi: Búið að opna á milli, herbergi inn af stofu. Parket á gólfi.
Svefnherbergi: Rúmgott með góðum skápum, viðarfjalir á gólfi.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og hluta veggja, upphengt salerni, baðkar með sturtu, handlæðaofn, tengi fyrir þvottavél.
Íbúðinni fylgir sérgeymsla í kjallara hússins.
Fyrirvarar:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.