Viltu fasteignir kynna mikið endurnýjaða 68m2 3ja herbergja íbúð á jarðhæð í suðurhlíðum Kópavogs.

Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning – Hægt að sýna með stuttum fyrirvara flesta daga.

Á sölusíðu eignarinnar er hægt að nálgast söluyfirlit og önnur sölugögn eignarinnar.

Íbúðin er skráð 68,1 m2 og skiptist í tvö svefnherbergi, baðherbergi, eldhús/stofu saman í alrými og sér þvottahús/geymsla innan íbúðar.

Eignin er fyrir ofan götu innst í botnlanga rétt við Kópavogsdalinn. Góður garður til suðurs. Sér bílastæði.

Nýlega var lokið tasverður endurbótum á eigninni:

Ný eldhúsinnrétting og tæki – Baðherbergi algjörlega endurnýjað – Gólfefni endurnýjuð – Innihurðir endurnýjaðar – Allir ofnar endurnýjaðir á síðustu árum.

Nánari lýsing:

Frá bílastæði er gengið upp nokkur þrep og þaðan um sérinngang í góða forstofu.
Forstofa:
Rúmgóð með útskoti fyrir fataskáp. Flísar á gólfi.
Eldhús/Stofa/Borðstofa: Samliggjandi í opnu og björtu rými með stórum gluggum til suðurs. Ný eldhúsinnrétting með innbyggðri uppþvottavél. Nýr bakaraofn og spansuðu helluborð frá Electrolux.
Baðherbergi: Ný endurgert. Flísalagt í hólf og gólf. "walk-in" sturta. Upphengt salerni og handklæðaofn.
Svefnherbergi I: Bjart og rúmgott herbergi með útskoti fyrir þrefaldan fataskáp.
Svefnherbergi II: Bjart og gott herbergi.
Þvottahús/Geymsla: Innan íbúðar er þvottahús með tengi fyrir þvottavél/þurrkara. Einnig eru lagnir fyrir ræstivask. Geymslan inn af þvottahúsinu er góð og rúmar t.d. vel skápa eða hillur. Eins er veggpláss sem má nota t.d til að hengja snúrur.
Garður: Gróinn og skjólgóður garður sem snýr í suður og austur. Fallegt dúkkuhús er í garðinum.
Bílastæði: Eitt hellulagt bílastæði með snjóbræðslu fylgir íbúðinni.

Hér er á ferðinni frábært tækifæri til að kaupa mikið endurnýjaða eign á vinsælum stað í suðurhlíðum Kópavogs.

Nánari upplýsingar um eignina veita Viltu fasteignir í síma 583-5000 / si.utlivobfsctd-94c128@davh
Einnig er hægt er að bóka skoðun beint hjá eiganda í síma 845-9000 eða moc.rudlihrohtobfsctd-608b0c@rudlihroht

Viltu fasteignir bjóða fasta söluþóknun frá 995.000 kr. m.vsk
Allt innifalið.
Kynntu þér málið á Viltu.is

Fyrirvarar:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.