Viltu fasteignir kynna bjarta, rúmgóða 116,1fm hæð að Kjartansgötu 3, 105 Reykjavík, ásamt 26,9fm bílskúr sem er innréttaður sem íbúð.
Falleg eign á góðum og grónum stað miðsvæðis í borginni.
Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.
Allar nánari upplýsingar veita:
Elísabet Kvaran löggiltur fasteignasali í síma si.utliv @tebasile0012-187
Karólína Íris löggiltur fasteignasali í síma si.utliv @anilorak9396-277
LÝSING:
Sameiginlegur inngangur.
Eignin skiptist í stórt hol, eldhús, tvær stofur, tvennar svalir, tvö svefnherbergi, baðherbergi, geymslu, sameiginlegt þvottahús og bílskúr sem er innréttaður sem studio íbúð.
Hol mjög rúmgott með fataskáp, parket á gólfi.
Eldhús er með góðri innréttingu og borðkrók. Flísar á gólfi.
Stofurnar eru tvær og opið er á milli þeirra. Parket á gólfi og útgengt út á svalir til suðurs.
Baðherbergi með baðkari, dúkur á gólfi.
Svefnherbergi I er rúmgott og bjart með parket á gólfi og svalir til austurs.
Svefnherbergi II er með parket á gólfi, og gluggar á tvo vegu.
Sérgeymsla er í sameign í kjallara ásamt sameiginlegu þvottahúsi.
Bílskúr er skráður 26,9fm og innréttaður sem íbúð, leigutekjur.
Falleg og vel skipulögð hæð á frábærum stað í Norðurmýrinni. Stutt í miðbæinn og alla þjónustu.
Viltu fasteignir bjóða fasta söluþóknun 995.000 kr.
Allt innifalið. – Ekkert vesen
Kynntu þér málið á Viltu.is
Fyrirvarar:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.