Viltu kynnir fallega tveggja herbergja íbúð á 1. hæð við Kópavogstún 5, 200 Kópavogur. Íbúðin er skráð 66,1m2 samkvæmt þjóðskrá.

Bjartur og fallegur samkomusalur er á jarðhæð þar sem aðstaða er fyrir íbúa hússins til koma saman og er salurinn einnig notaður fyrir ýmiskonar uppákomur.

Þjónusta og félagsstarf er í næsta nágrenni. Útivistarsvæði er rétt við húsið, sundlaug í göngufæri sem og menningarhús, verslanir og matsölustaðir. Stutt í fallegar göngu- og hjólaleiðir í allar áttir. Nóg er af bílastæðum framan við húsið á upphituðu plani.

Íbúðir í Kópavogstúni 5 eru 27 talsins og eru einungis fyrir 60 ára og eldri.

Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.

Allar nánari upplýsingar veita:

Elísabet Kvaran löggiltur fasteignasali í síma 781-2100, si.utlivobfsctd-696056@tebasile

Karólína Íris löggiltur fasteignasali í síma 772-6939, si.utlivobfsctd-38ee4a@anilorak

Nánari lýsing

Forstofa er með góðum fataskáp og parket er á gólfi.

Eldhús er með spónlagðri innréttingu og góðum tækjum. Eldhús er í einu opnu rými með stofu.Parkert er á gólfi.

Stofan er björt og rúmgóð og þaðan er útgengt út á svalir með glerlokun. Svalir snúa í suð-vesturs, með fallegu útsýni.

Hjónaherbergi er með góðum fataskáp og parket er á gólfi.

Baðherbergi er rúmgott með ljósri innréttingu, sturtu með glerlokun og flísalagt gólf og veggi. Innná baðherbergi er einnig innrétting fyrir þvottavél og þurrkara, gott skápapláss.

Sérgeymsla er á jarðhæð ásamt hjólageymslu.

Bjartur og fallegur samkomusalur er á jarðhæð þar sem aðstaða er fyrir íbúa hússins til koma saman og er salurinn einnig notaður fyrir ýmiskonar uppákomur.

Falleg íbúð í nýlegu og viðhaldsléttu fjölbýlishúsi á góðum stað í Kópavoginum. Þjónusta og félagsstarf er í næsta nágrenni. Útivistarsvæði er rétt við húsið, sundlaug í göngufæri sem og menningarhús, verslanir og matsölustaðir. Stutt í fallegar göngu- og hjólaleiðir í allar áttir. Nóg er af bílastæðum framan við húsið á upphituðu plani.

Íbúðin er tilbúin til afhendingar við kaupsamning.

Íbúðir í Kópavogstúni 5 eru 27 talsins og eru einungis fyrir 60 ára og eldri.

Fyrirvarar:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.