Viltu fasteignir kynna Strandveg 13, 210 Garðabær (Sjáland)

Á sölusíða eignarinnar er hægt að nálgast söluyfirlit ásamt öðrum sölugögnum eignarinnar.
Einni er hægt að vakta eignina og gera tilboð í hana

Hægt að skoða samdægurs flesta daga. Laus til afhendingar við kaupsamning.

Strandvegur 13 er falleg, björt og rúmgóð 3ja4ra herbergja íbúð á 3. hæð ásamt stæði í lokaðir í bílageymslu. Sjávarútsýni og svalir suðurs. Eignin skiptist í forstofu, samliggjandi stofu/borðstofu og eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús/geymslu, svalir og stæði í bílageymslu með möguleika á rafbílahleðslu.

Eignin er skráð 118 m2 / Fasteignamat 2026 – 106.450.000 kr.

Nánari lýsing:
Forstofa: Frá sameign er gengið í góða forstofu með tvöföldum fataskáp. Flísar á gólfi
Stofa/borðstofa: Í rúmgóðu, opnu og björtu rými og með parket á gólfi. Frá stofu er gengið út á rúmgóðar suðursvalir íbúðarinnar. Fallegt sjávarútsýni til norðurs úr stofu
Eldhús: Vönduð innrétting á tveimur veggjum. Ofn í vinnuhæð og gert ráð fyrir uppþvottavél. Granít á borðum. Veggurinn sem skilur eldhús frá stofu er léttur og mörg fordæmi fyrir að opna eldhúsið og hafa eyju. Flísar á gólfi
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Góð innrétting, "labb-inn" sturta, og upphengt klósett og handklæðaofn.
Hjónaherbergi : Mjög rúmgott og bjart með parket á gólfi og tvöföldum fataskáp.
Svefnherbergi I: Rúmgott og bjart herbergi með parket á gólfi og fataskáp
Svefnherbergi II: Bjart og gott herbergi með parketi á gólfi og fataskáp. Auðvelt er að fjarlægja þetta herbergi og stækka alrými enn meira eins og á upphaflegu teikningunni.
Þvottahús: Flísar á gólfi. Góð innrétting með geymsluplássi og plássi fyrir þvottavél og þurrkara.
Svalir: Út frá stofu eru svalir til suðurs.
Geymsla: Í sameign í kjallara er rúmgóð geymsla sem gengið er í beint frá bílakjallara
Stæði bílageymslu: Í bílageymslu í kjallara er sér bílastæði fylgir íbúðinni og gert ráð fyrir rafbílahleðslu.

Eignin er á frábærum stað við sjóinn í Sjálandi í Garðabæ.

Nánari upplýsingar veitur Heiðrekur Guðmundsson, löggiltur fasteignasali í 845-9000 eða si.utlivobfsctd-14f3af@rukerdieh

Nánari upplýsingar í síma 5835000 eða si.utlivobfsctd-83cd0b@davh

Viltu fasteignir bjóða fasta söluþóknun 995.000 kr.
Allt innifalið
Kynntu þér málið á Viltu.is

Fyrirvarar:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.