Opens in a new tab

Viltu fasteignir kynna Unufell 50 sem er mikið endurnýjuð 99,3m2 4ra herbergja íbúð með þvottahús innan íbúðar.

Á sölusíðu eignarinnar er hægt að nálgast söluyfirlit, húsfélagsyfirlit og önnur sölugögn eignarinnar.

Eignin skiptist í forstofu, samliggjandi stofu/borðstofu, eldhús, 3 góð svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Í sameign í kjallara eru hjólageymsla ásamt sér geymslu fyrir íbúðina.

Eignin er skráð 99.3m2, þar af 4,6 m2 geymsla í kjallara

Á árunum 2023-2026 er búið að endurnýja nánast alla íbúðina á vandaðan hátt:
Öll gólfefni endurnýjuð – Allar innihurðir endurnýjaðar – Allir gluggar íbúðar ásamt svalahurð endurnýjað – Allir ofnar íbúðar endurnýjaðir – Nýtt HTH eldhús – Loft niðurtekin með lýsingu.
Að utan hefur húsið fengið reglulegt viðhald:
Þakklæðning og þakgluggar endurnýjaðir – Skipt um dyrasíma – Hluti húss málaður – Rafbílahleðslur við stæði.

Nánari lýsing:
Forstofa: Frá sameign er gengið í gang/hol og þaðan er gengið í önnur rými íbúðarinnar. Góður fataskápur er í forstofu/gangi.
Stofa/borðstofa: Samliggjandi og rúmgóð í opnu og björtu rými. Frá stofu er gengið út á svalir.
Svalir: Út frá stofu eru um 10m2 svalir.
Eldhús: Algjörlega endurnýjað. Vönduð HTH innrétting með stórri eyju. Eldhúsið er vel opið inn í stofu en einnig að gangi/holi. Mjög gott skápa-og borðpláss.
Baðherbergi: Allt endurnýjað. Flísalagt í hólf og gólf. Upphengt klósett og baðkar með sturtuaðstöðu. Gott skápa-og geymslupláss.
Hjónaherbergi : Rúmgott og bjart með fallegri HTH innréttingu kringum og yfir hjónarúmi.
Herbergi 2: Rúmgott og bjart herbergi.
Herbergi 3: Gott og bjart herbergi sem nýtist vel.
Þvottahús: Innan íbúðar, innaf eldhúsi, er þvottahús með góðri innréttingu og plássi fyrir þvottavél og þurkkara.
Geymsla: Í sameign í kjallara er 4,6 m2 geymsla sem fylgir íbúðinni.
Í sameign er einnig sameiginleg hjólageymsla.

Eignin er á frábærum stað í Breiðholti þar sem stutt er í þjónustu, skóla/leikskóla og útvist!

Nánari upplýsingar veita Heiðrekur Guðmundsson, löggiltur fasteignasali í 845-9000 / si.utlivobfsctd-5939c4@rukerdieh eða Viltu fasteignir í síma 583-5000 / si.utlivobfsctd-915b5b@davh

Nánari upplýsingar í síma 583-5000 eða si.utlivobfsctd-68c77f@davh

Viltu fasteignir bjóða fasta söluþóknun frá 995.000 kr. m.vsk
Allt innifalið.
Kynntu þér málið á Viltu.is

Fyrirvarar:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.