Viltu kynnir atvinnuhúsnæði í 210, Garðabær
Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.
Viltu fasteignir kynnir gott verslunar- og/eða þjónustuhúsnæði á jarðhæð í Urriðaholti. Rýmið er skráð 69,7m2.
Eignin er staðsett við eina helstu akstursleið inní Urriðaholtið og hefur því gott auglýsingagildi og þægilega aðkomu.
Gengið er inn beint frá götu og bílstæði beint fyrir framan rýmið.
Eldhús/kaffistofa með góðri innréttingu.
Salernisaðstaða innan rýmis.
Í dag er rekin í rýminu nagla- og snyrtistofa en eignin afhendist án leigjenda fljótlega eftir áramótin ef þess er óskað.
Vsk. kvöð er á eigninni.
Allar nánari upplýsingar veitir Heiðrekur Guðmundsson, löggiltur fasteignasali, í 8459000 eða si.utliv@rukerdieh
Fyrirvarar:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.